Knattspyrnufélagið Hati
25.04.2008 00:43:09 / eddi

Ný síða

Sælir

erum fluttir yfir á nýja síðu,

www.123.is/hati


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 00:24:55 / eddi

Hati - Norðri

Myndbandið af leik Hata og Norðra sérðu hér


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 21:54:41 / eddi

Myndir

Jæja strákar, þá er komið að því.

Nú eru allar myndir sem Ragnar tók í sumar komnar á netið. Þetta eru myndir á móti Greifunum, Mývetningum, Narfa og Timburmönnum.

Myndir úr leiknum á móti Greifunum er hægt að nálgast hér.

Myndir úr leiknum á móti Mývetningum er hægt að nálgast hér.

Myndir úr leiknum á móti Timburmönnum er hægt að nálgast hér.

Myndir úr leiknum á móti Narfa er hægt að nálgast hér.

 

Video af leikjum sumarsins koma núna næstu daga. Er byrjaður að klippa niður næsta leik.

Kv. Eddi


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 21:49:19 / eddi

Lokahóf og kostningar

Sælir strákar,

Lokahófi sem við ætluðum að halda næsta laugardag hefur hér með verið frestað. Ástæðan er að fáir gátu komist og kemur ný dagsetning fljótlega en við munum spjalla við ykkur og sjá hvenær flestir (helst allir) geti komist. 

 

 Kosning á besta leikmanni ársins er lokið  og sigraði Sævar með yfirburðum og óskum við honum til hamingju með það. Nú munum við kjósa um mestur framfarir sumarsins og verður þetta sms kosning og bið ég ykkur um að senda sms til Sævars með nafni þess leikmanns sem mestu framfarir hefur tekið í sumar. Ef þið eruð ekki með símanúmerið hans Sævars skrifið þið það í kommentið og Sævar hefur samband við ykkur.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 00:27:24 / eddi

Góður sigur á Norðra

Sælir strákar,

Í kvöld unnum við frábæran sigur á Norðra og urðu lokatölur 10-3 en sigurinn hefði nú getað verið stærri. Í kvöld beyttum við nýrri tækni í leikkerfi er við stiltum upp liðinu 1-3-2 og tókst það með ágætum með smá hnökrum sem við kanski lögum seinna, ef við spilum þetta leikkerfi aftur.

Guffi fór á kostum í leiknum í kvöld og skoraði hann fjögur mörk, öll í regnbogalitum(og eitt ljótasta mark sem sést hefur) Sævar skoraði tvö mörk eins og Biggi Nice(reyndar var dómarinn svo góður að skrá mörkin á mig, en þar sem ég er svo góður er ég búinn að laga það á leikskýrslu) Síðan skoraði Öddi og Sverrir sitt markið hvor.

Lokahóf okkar verður haldið á næstunni og er 1. september dagurinn og virðist sem flestir ætli að mæta sem ég er búinn að tala við. Spurning hvort að menn skrifi í kommentið um hvort að þeir komist eða ekki. Spurning um að byrja um kl. 20:00.

 

Nú eru komnar myndir á netið og eru það myndir sem teknar voru í leiknum á móti Strók. Myndirnar er hægt að skoða hér. Fleiri myndir koma síðan á næstu dögum. Ég lofa því.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 16:05:04 / eddi

Leikur í kvöld

Sælir strákar,

 Í kvöld fer fram síðasta umferðin í Goðadeildinni í sumar er við mætum liði Norðra. Norðri eru í 9. sæti deildarinnar með 4 stig en við erum í því áttunda með 5 stig. Við verðum að spila góðan leik svona í lokin þar sem við höfum átt arfa slakt tímabil í sumar. Eftir leik fer síðan fram kosning um leikmann ársins hjá okkur og verða úrslitin kunngjör í lokahófi okkar.

Þeir sem enn eiga eftir að borga keppnisgjald endilega að klára það sem fyrst svo við getum keypt veitingar í veisluna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 21:36:47 / eddi

Akureyri hættir keppni

Sælir strákar,

Akureyri drógu lið sitt úr keppni og þar með erum við í fríi á morgun. Spurning hvort að við mætum ekki og tökum eina létta æfingu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 22:08:31 / eddi

Æfing og leikur

Sælir strákar,

 Of fáir mættu á æfingu í gær og létu ekki vita hvort að þeir kæmust eða ekki. En allavega við sem mættum skemmtum okkur konunglega.

Annað kvöld eigum við leik gegn Narfa frá Hrísey. Narfi er í sæti fyrir neðan okkur með 6 stig en lakara markahlutfall. Sigur er það eina sem kemur til greina. 

Ekki mæta seinna en 19:45 


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 23:10:22 / eddi

allt og ekkert.

Sælir strákar,

Eftir síðasta leik var ég svo niðurbortinn að ég tók upp tónlistarmyndband með sjálfum mér til að lyfta mér upp og sjáið þið það hér.

En annars þeir sem eru búnir að skoða videoið sem ég lét ykkur hafa, er eitthvað sem þarf að laga? endilega látið mig vita. Ætla síðan að reyna að gera hina leikina klára sem fyrst.

Æfing á sunnudag kl. 17:00. Eigum við að hafa það fótbolta eða skallabolta? Nú er kostning um það.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 22:15:56 / eddi

Tap í kvöld

Jæja, tap í kvöld á móti Strók og urðu lokatölur 2-1. Strókur komst yfir snemma í fyrri hálfleik en sóttum við en náðum ekki að jafna fyrr en um miðjan seinni hálfleik þegar Gísli skoraði með góðu skoti eftir barning í vítateig Stróks. En það var síðan Jón Eyberg sem skoraði sigurmark Stróks undir lokin beint úr aukaspyrnu.

En við grátum þetta ekki lengi og nú er hálfum mánuður þar til næsti leikur fer fram og verðum við að hittast á þeim tíma og fá okkur pizzur og öl(gos) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 11:18:56 / eddi

Hati - Strókur í kvöld

Sælir

 Í kvöld verður baráttuleikur í Boganum þegar við mætum liði Strók. Strókur er í 7. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og við en verra markahlutfall. Strókur tapaði í síðustu umferð fyrir Timburmönnum og urðu úrslit leiksins 5-0, en á sama tíma unnum við góðan sigur á Oddfield. Við hvetjum alla til að mæta í Bogann og stiðja sína menn.

 Videoið af fyrsta leiknum er klárt en kem því ekki á internetið þannig að þið fáið það á disk í kvöld.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 14:06:10 / eddi

Bolti í dag

Bolti í dag við Glerárskóla kl. 17:00 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 00:59:48 / eddi

Æfingar

Sælir strákar,

 Nú verðum við að festa niður æfingatíma tvisar í viku. Nú verðum við að koma okkur saman um hvaða tíma hentar best fyrir okkur. 

Endilega komið með tillögur um æfingar í sumar. 


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 21:13:50 / eddi

Sigur í mögnuðum leik

Jæja þá loks kom sigur hjá okkur eftir tvö töp í röð og var þetta góður sigur í alla staði.

 Byrjuðum leikinn á því að spila boltanum vel á milli okkar og komu leikmenn Oddfield varla við boltann fyrstu mínúturnar. Og fengum við færi til að skora en nýtum það ekki. En síðan kom Oddfield í sína fyrstu sókn og kemur sending fyrir markið og Kalli missir af boltanum og dettur hann fyrir fætur leikmanns Oddfield og skorar hann auðvelt mark. En ekki þurftum við að bíða lengi eftir næsta marki í leiknum en Öddi fékk boltann inn í teig og brutu leikmenn Oddfield á honum og góður dómari leiksins dæmdi víti, sem Öddi tók síðan sjálfur og skoraði örugglega.

En aftur komust Oddfield aftur yfir eftir smá misskilning í vörn okkar og komust þeir frekar auðveldlega í gegn og skoruðu laglega framhjá Kalla. En aftur jöfnuðum leikinn þegar Gummi skoraði eftir hraða sókn hjá okkur, Frikki fékk boltann á kantinum og sendir boltann á fjarstöng þar sem Gummi er og skorar fallegt mark og var staðan 2-2 í hálfleik.

En meiri skemmtun var í seinni hálfleik, mættu leikmenn Oddfield sterkir til hálfleiksins og pressuðu okkur framar en þeir gerðu í þeim fyrri en okkur tókst þó að höndla það og spiluðum við boltanum vel fram á við úr vörninni. En um miðjan seinni hálfleiks fáum við hornspyrnu og þegar boltanum er spyrnt inn í teig brjóta leikmenn Oddfield á Sævari sem kom hlaupandi á móti boltanum og var dæmdi dómarinn víti sem Siggi skoraði síðan úr.

Stuttu seinna þegar við erum í sókn flautaði dómarinn og dróg upp rauða spjaldið og sýndi síðan Sverri en hann gaf einum leikmanni Oddfield olnbogaskot spjaldið réttlát. Eftir þetta einum manni færri var pressan á okkur mikil og vorum við bara rólegir og fengum við nokkur færi til að skora úr en okkur brást bogalistin. 

Báðum liðum tókst ekki að skora það sem eftir var og var sigur okkar staðreynd þegar Ingvar flautaði til leiksloka og urðu lokatölur 3-2.

 Góður leikur hjá okkur og verðum við að gera meira af þessu í næstu viku en þá eigum við leik á móti Strók og hefst hann kl. 19:00.


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 21:47:14 / eddi

Tap

Sælir

 Því miður gekk ekki í síðasta leik okkar og var tap staðreind og urðu lokatölur 3-1 Dolles í vil.

Þetta var ekki góður leikur af okkar hálfu, þó að við vorum meira með boltann þá voru það fá marktækifæri sem við sköpuðum okkur, því miður.

En annars man ég ekki mikið úr leiknum til að skrifa um hann þannig að við þurfum að ráða okkur fréttaritara til að skrifa um leikina okkar.

En að öðru, mig vantar tónlist til að setja inn á videoið okkar. Ef einhverjir eru með mikið af tónlist þá væri gott ef þið gætuð látið mig hafa þó nokkuð af því. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13